hvati1@wordpress


Allt að gerast!
May 27, 2007, 1:15 pm
Filed under: Uncategorized

Við erum búin að búa til aðra blogsíðu sem verður tileinkuð ferðalagi okkar um evrópu næsta mánuðinn…

www.blog.central.is/hvatiogsunna – reynum kannski að smella einhverjum myndum með…

Bless á meðan



Hví?
May 21, 2007, 12:02 pm
Filed under: Þvaður!

Hvers vegna getur fólk hugsað svona kjánalega:

“Fyrirtækið hans pabba er að tapa fullt af peningum sem fara í öreiga sem vinna ekki einu sinni fyrir þeim!”

Afsakið, en… Þessi unga skoðanalausa snót veit varla hvað lífið hefur upp á að bjóða. Þess má kannski geta að hún er Sjálfstæðismaður eða kona, hvernig sem þú lítur á það. Kaldhæðnin er: Það vottar ekki fyrir sjáflstæði hjá henni. 
Ég verð alltaf svo reiður þegar fólk hugsar svona! Þið eigið sjálfsagt eftir að taka eftir því á komandi árum…

 - Friður! 



HOLY MOLY!
May 15, 2007, 1:25 pm
Filed under: Þvaður!

Þá er það staðfest! Við Sunna erum (99,999%) á leiðinni til Kolding í ágúst. Jú málin standa þannig að Danir vakna eldsnemma á morgnanna til að svara e-mailum og ég fékk eitt kl. 5.33 í morgun þess eðlis að umsókn mín í NoMA/CEU Kolding væri afgreidd og ég fengi skólagöngu í vetur. N.B. Ég las mailið ekki fyrr en um hálf 8 í morgun – ég er ekki alveg svona morgunhress.

 Venlig hilsen…



Sánd tjékk
May 13, 2007, 10:06 pm
Filed under: Þvaður!

Fyrsta færslan í nýju umhverfi… Þetta verður tímabundinn aðalvefur hvati.dk

enjoy!




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.